F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Langholtsskóli, endurnýjun á þaki sérdeildar – Útboð nr. 14505.
Verkið felst í:
Rif og förgun ásamt endurnýjun á þakjárni og þakpappa ásamt tilheyrandi frágangi og ef þörf er á skal endurnýja skemmda/fúna borðaklæðningu þaksins. Endurnýjuð þakklæðning skal vera lektuð upp á tvöfaldri grind í samræmi við verk- og efnislýsingar.
Helstu magntölur eru:
Verkþáttur Ein. Magn
Rif og förgun (þakjárn, þakpappi og fylgihlutir) m2 450
Endurnýjun þakpappa m2 485
Lektur (tvöföld grind) m2 450
Endurnýjun þakjárns m2 450
Þakull með vindpappa, 200mm m2 410
Verklok 15. ágúst 2019.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 16:00, föstudaginn 5. apríl 2019.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:20 þann 26. apríl 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is