Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Svona er staðan á nýja fimleikahúsinu við Vesturgötu á Akranesi

Svona er staðan á nýja fimleikahúsinu við Vesturgötu á Akranesi

321
0
Mynd: Skagafréttir.is

Framkvæmdir við nýtt fimleikahús við Vesturgötu á Akranesi ganga vel.
Hafist var handa við framkvæmdina í lok ágúst á síðasta ári.

<>

Fyrirtækisins Spennt ehf. er verktakinn sem sér um framkvæmdina fyrir Akraneskaupstað.

Áætluð verklok eru í desember 2019.

Mynd: Skagafréttir.is

Um er að ræða nýbyggingu á fimleikasal sem verður 1640 m² að stærð.
Í salnum verður steypt áhorfendastúka en rými undir henni verður síðan nýtt undir sturtur fyrir núverandi búningsklefa sem fyrir eru í þróttahúsinu.

Búningsklefar í eldri byggingu íþróttahússins verða endurnýjaðir sem og einnig anddyri og kennslurými þar sem frístund Brekkubæjarskóla hefur verið starfandi.

Verkið felst í jarðvinnu, uppsteypu, stálvirki í þaki, þakeiningum, lögnum, loftræstingu, raflögnum, frágangi að innan og að utan og lóðargerð umhverfis húsið.

Heimild: Skagafrettir.is