Home Fréttir Í fréttum 02.05.2019 Seljakot, endurgerð lóðar 2019 – 1. áfangi – Jarðvinna

02.05.2019 Seljakot, endurgerð lóðar 2019 – 1. áfangi – Jarðvinna

249
0
Seljakot Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Seljakot, endurgerð lóðar 2019 – 1. áfangi – Jarðvinna. Útboð nr. 14446

<>

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið er 1. áfangi í endurgerð lóðar leikskólans Seljakots við Rangársel 15, 109 Reykjavík. Svæðið sem um ræðir er núverandi leiksvæði vestan við leikskólann og nærsvæði þess, um það bil 1.300 m².

Verkefnið er að lagfæring / styrking á allri lóðinni. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt.

Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
Verkkaupi leggur til leiktæki, fallvarnarefni, gervigras og yfirborðs meðhöndlun malbiks og verða þeir verkliðir unnir, af verktökum / aðilum á vegum söluaðila viðkomandi efna, samhliða verkþáttum jarðvinnuverktaka.

Verktaki á að skila undirvinnu á leiksvæðum fyrir 15. júlí 2019 vegna vinnu við leiktæki, fallvarnarefni og gervigrasi. Vinna á vegum söluaðila þessa verkþátta á að vera á tímabilinu 15. júlí til 10. ágúst 2019.

Verktaki þarf að samræma sína vinnu gagnvart öðrum framkvæmdaraðilum á lóðinni og taka fullt tillit til þeirra vinnu.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 mánudaginn 1. apríl 2019.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.

Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 2. maí 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is