Home Fréttir Í fréttum 30.04.2019 Ártúnsskóli, endurgerð lóðar 2019 – 1. áfangi – Jarðvinna

30.04.2019 Ártúnsskóli, endurgerð lóðar 2019 – 1. áfangi – Jarðvinna

227
0
Ártúnsskóli Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Ártúnsskóli, endurgerð lóðar 2019 – 1. áfangi – Jarðvinna. Útboð nr. 14455

<>

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið er 1. áfangi í endurgerð lóðar Ártúnsskóla við Árkvörn 6, 110 Reykjavík. Um er að ræða nærsvæði skólans suðvestan til á lóðinni, um það bil 1.200 m².

Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á allri lóðinni. Aðgengi fyrir alla, leiktæki og yfirborðsefni. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Verkkaupi leggur til leiktæki, fallvarnarefni, gervigras og yfirborðs meðhöndlun malbiks og verða þeir verkliðir unnir, af verktökum / aðilum á vegum söluaðila viðkomandi efna, samhliða verkþáttum jarðvinnuverktaka.

Verktaki á að skila undirvinnu á leiksvæðum fyrir 15. júlí 2019 vegna vinnu við leiktæki, fallvarnarefni og gervigrasi. Vinna á vegum söluaðila þessa verkþátta á að vera á tímabilinu 15. júlí til 10. ágúst 2019.

Verktaki þarf að samræma sína vinnu gagnvart öðrum framkvæmdaraðilum á lóðinni og taka fullt tillit til þeirra vinnu.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 mánudaginn 1. apríl 2019.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 30. apríl 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is