Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með repave aðferð eða fræsingu og malbiki á Suðursvæði árið 2015.
Helstu magntölur:
Repave/fræsing og malbik, yfirlagnir 43.800 m2
Verki skal að fullu lokið 25. ágúst 2015.
Útboðsgögn verða seld á hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 8. júní 2015. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. júní 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.