Home Fréttir Í fréttum Um eitthundrað manns vinna um þessar mundir að smíði gagnavers á Blönduósi

Um eitthundrað manns vinna um þessar mundir að smíði gagnavers á Blönduósi

203
0
Smíði gagnaversins fór á fullt í haust. Mynd: Stöð 2/Einar Árnason.

Um eitthundrað manns vinna um þessar mundir að smíði gagnavers á Blönduósi. Framkvæmdirnar hafa hleypt miklu fjöri í athafnalíf í Húnavatnssýslum. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.

<>

Ráðamenn á Blönduósi voru búnir að ræða um gagnaver í tólf ár.

„Og margir búnir að gera grín að því að þetta sé eitthvað sem muni aldrei koma. En það er bara komið núna,“ segir Valgarður Hilmarsson, umsjónarmaður gagnaversverkefnis og fyrrverandi sveitarstjóri.

Fyrsta skóflustungan var tekin síðastliðið vor og hafa framkvæmdir verið keyrðar mjög hratt frá því í haust. Gagnaverið rís um þrjá kílómetra utan við Blönduós og eru byggingarnar teknar jafnóðum í notkun.

„Og búið að byggja hérna núna tæplega fjögurþúsund fermetra í sjö húsum. Það eru komin sjö hús af átta,“ segir Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri Blönduósbæjar.

„Fyrstu áhrifin voru nú bara jákvæðni sem fylgir því að eitthvað er að gerast. Og það var nú tilfellið að íbúum fjölgaði nú bara strax við fyrstu ákvörðun, sko,“ segir Valgarður.

„Það má segja að þetta sé okkar svona snyrtileg stóriðja hérna á svæðinu og er að skapa störf. Hér hafa verið um og yfir hundrað manns að vinna við uppbygginguna síðastliðna þrjá mánuði. Og það er ekki bara af Blönduóssvæðinu heldur úr sýslunum hér í kring, Skagafirði og alveg suður á Reykjanes,“ segir Valdimar sveitarstjóri.

„Þannig að það er mikill uppgangur. Þetta þýðir gistingu, matarsölu, þjónustu og annað slíkt,“ segir sveitarstjórinn.

Rafmagnsverkstæðið Átak er dæmi um fyrirtæki á Blönduósi sem hefur margfaldast að stærð vegna framkvæmdanna.

„Árið 2012 voru tveir starfsmenn, 2015 kemur þriðji, held ég. Við erum komnir núna upp í ellefu stöðugildi hjá okkur. Svo erum við með þarna tólf undirverktaka hjá okkur, sem eru allir að vinna uppfrá,“ segir Sigurgeir Þór Jónasson, rafmagnsverkfræðingur hjá Átaki.

Áætlað er að í gagnaverinu verði milli tuttugu og þrjátíu föst störf. En verður það til heilla fyrir Blönduós og nærsveitir?

„Það er orðið til heilla og verður til ennþá meiri heilla. Það er ekki spurning,“ svarar Valgarður Hilmarsson.

Heimild: Visir.is