Home Fréttir Í fréttum 08.03.2019 Forval – Tryggvagata og Naustin – Hönnun

08.03.2019 Forval – Tryggvagata og Naustin – Hönnun

173
0
Mynd: mbl.is/​RAX

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er auglýst eftir umsóknum um þátttöku í lokuðu útboði í verkfræðihönnun verksins:
Tryggvagata og Naustin – Hönnun. Forval nr. 14427

<>

Forvalsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar eftir kl. 13:00 þann 26. febrúar 2019 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Umsóknum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 8. mars 2019.

Umfang verks:
Verkefnið felst í verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna endurnýjunar gatna, gönguleiða og torgs við Tollhús, veitulagna (fráveita, vatnsveita, hitaveita, rafveita, gatnalýsing og blágrænar ofanvatnslausnir) í Tryggvagötu milli Pósthússtrætis og Grófar og Naustin.
Heildarlengd gatna á svæðinu er um 290m.
Nánar tiltekið felst verkefnið í neðangreindu:
· Hönnun á endurnýjun gatna, gönguleiðum, torgum og götugögnum
· Landmælingar svæðis og úrvinnsla
· Hönnun á blágrænum ofanvatnslausnum.
· Hönnun á endurnýjun fráveitu, rafveitu, vatnsveitu og hitaveitu.
· Hönnun endurnýjunar lýsingar svæðisins.
· Skiltun og yfirborðsmerkingar.
· Vinnustaðamerkingar og aðkoma á verktíma þ.m.t. bráðabirgðaakstursleiðir
· Gerð útboðsgagna fyrsta framkvæmdaáfanga.

Hönnun fráveitu, rafveitu, vatnsveitu og hitaveitu verður í samráði við Veitur ohf.
Hönnun á lögnum Gagnaveitu Reykjavíkur verður í höndum Gagnaveitu Reykjavíkur.
Hönnun á lögnum Mílu verður í höndum Mílu ehf.
Hönnunarstjóri ráðgjafa verður samræmingaraðili gagnvart veitum. Hönnuður gerir uppdrætti af sameiginlegum skurðsniðum og ákveður kostnaðarskiptingu í viðkomandi sniðum og fellir inn í útboðs- og verklýsingu og tilboðsskrá gögn frá viðkomandi veitum.
Hönnuður annast gerð heildarkostnaðaráætlunar og fellir inn í hana kostnaðar­áætlanir frá veitum.

Til nánari glöggvunar á umfangi og eðli verksins er vísað á http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/#

Tímaáætlun:
Kaupandi gerir ráð fyrir að fylgja eftirfarandi tímaáætlun í forvali hönnuða og hönnunarhluta verkefnisins:

08.03.2019: Umsækjendur í forvali skila inn umsókn um þátttöku
13.03.2019: Tilkynning kaupanda um niðurstöður forvals
13.03.2019: Útboðsgögn hönnunar gefin út til þátttakenda í lokuðu útboði
25.03.2019: Opnun verðtilboða í hönnun
01.04.2019: Samþykki tilboðs í hönnun – hönnun hefst
31.05.2019: Hönnunarvinnu skilað til yfirlestrar kaupanda
14.06.2019: Lok hönnunarvinnu og útboðsgögn afhent kaupanda