Home Fréttir Í fréttum Blönduósbær auglýsir tillögu að deiliskipulagi að nýjum íbúðalóðum

Blönduósbær auglýsir tillögu að deiliskipulagi að nýjum íbúðalóðum

172
0
Frá Blönduósi. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.

Blönduósbær hefur auglýst tillögu að deiliskipulag að nýjum íbúðalóðum við Fjallabraut, Lækjarbraut og Holtabraut á Blönduósi.

<>

Auglýsingin er í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar frá 12. febrúar síðastliðnum. Tillagan samanstendur af skipulagsuppdrætti og greinargerð.

Allar meginforsendur deiliskipulagsins eru í samræmi við Aðalskipulag Blönduóss 2010–2030, að því er segir í auglýsingunni.

Tillagan liggur frammi til kynningar frá 19. febrúar til 2. apríl nk. á skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33 á Blönduósi.

Einnig er tillagan aðgengileg á heimasíðu Blönduósbæjar, http://www.blonduos.is. Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 2. apríl nk. til skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduósi. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Heimild: Huni.is