Home Fréttir Í fréttum Erfitt reynist að byggja ódýrt húsnæði

Erfitt reynist að byggja ódýrt húsnæði

257
0

Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri félags eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu, segir ríki og borg standa í vegi fyrir því að uppgangur verði í byggingu húsnæðis hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum.

<>

Félagið fékk úthlutaða lóð fyrir tæpu ári síðan en hefur enn ekki getað hafist handa við að byggja húsnæði á henni.

Félagið hefur komi á laggirnar óhagnaðardrifnu leigufélagi með það að markmiði að vinna úr húsnæðisvanda eldri borgara á Höfuðborgarsvæðinu. Félagið hefur í gegnum tíðina byggt rúmlega 400 íbúðir sem seldar hafa verið félagsmönnum en upp á síðkastið hefur þörfin fyrir leiguhúsnæði fyrir þennan aldurshóp aukist.

Framkvæmdastjóri félagsins segir borgarráð hafa gefið vilyrði fyrir lóð í apríl í fyrra en núna tæpu ári seinna eru framkvæmdir enn ekki hafnar.

„Hér fengum við vilyrði fyrir lóð sem enn er auð en það þarf að vinna hraðar. Allt kerfið þarf að vinna hraðar,“ segir hann og bendir á að félagið hafi unnið mjög þétt með íbúðarlánasjóði og hælir starfsfólki þar. „En öll þau ljón sem eru á þessum vegi, sækja um stofnstyrki og að fá úthlutað lóð, eða frágenginni lóð er alltof alltof flókið.“

Auka þarf fjármagnið í málaflokkinn
Gísli bendir á að mikil umræða sé um að leysa húsnæðisvanda allra, á bak við hann séu félagmenn sem þurfi að komast í leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði.

Í fréttum okkar fyrir helgi sögðum við einnig frá þeim vanda sem Bjarg íbúðarfélag, sem er óhagnaðardrifið leigufélag, stendur frammi fyrir á Kirkjusandsreitnum.

Staðið hefur á framkvæmdum þar því erfitt reynist að fá verktaka í að hann ódýrar íbúðir. Gísli segir því mörg ljón í veginum þegar kemur að því að byggja ódýrt húsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

„Það þarf að setja í þetta meira fjármagn og skipulagsyfirvöld þurfa að vinna hraðar og þéttar að þessu öllu. Þetta er ekki fyrsta dæmið okkar.

Við lentum í svipuðu dæmi upp í Árskógum þar sem tafðist bygging þess hús sem við erum núna að ljúka um hálft ár og rúmlega það vegna skipulagsmála og lóðin var ekki tilbúin,“ segir hann.

Heimild: Visir.is