Home Fréttir Í fréttum 05.02.2019 Gufunes 1. áfangi. Gatnagerð og lagnir – Hönnun – Forval

05.02.2019 Gufunes 1. áfangi. Gatnagerð og lagnir – Hönnun – Forval

314
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir umsóknum í:
Gufunes 1. áfangi. Gatnagerð og lagnir – Hönnun. Forval nr. 14401.

<>

Forvalsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – Frá kl. 11:00 þriðjudaginn 22. janúar 2019.

Smellið á íslenska fánann neðst á síðunni til þess að fá vefsíðuna upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða ,,Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Umsóknum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, þriðjudaginn 5. febrúar 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is

Yfirlit verks:
Verkefnið felst í verkhönnun, gerð útboðsgagna og hæðarblaða vegna gatnagerðar, veitulagna og aðkomustíga í fyrsta áfanga uppbyggingar í Gufunesi í samræmi við samnefnt deiliskipulag.
Hönnun á rafveitu, vatnsveitu, hitaveitu og fjarskiptalögnum er undanskilin útboði.