Home Fréttir Útboð 16.06.2015 Arnarnesvegur (411), Reykjanesbraut – Fífuhvammsvegur

16.06.2015 Arnarnesvegur (411), Reykjanesbraut – Fífuhvammsvegur

565
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð Arnarnesvegar (411), milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar.  Verkið felst í gerð Arnarnesvegar frá mislægum gatnamótum við Reykjanesbraut og austur fyrir Fífuhvammsveg, samtals 1.600 m.  Á vegkaflanum skal gera þrenn gatnamót og byggja skal tvö steypt undirgöng. Einnig skal setja upp veglýsingu, umferðarljós, gera stíga, landmótun, hljóðvarnir og annað sem nauðsynlegt er til að ljúka verkinu.

<>

Um svæðið liggja tveir háspennustrengir, 132kV og 11kV. Strengina þarf að færa til og endurleggja í samvinnu við OR. Einnig skal leggja nýja stofnlögn hitaveitu auk ídráttarröra og strengja.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Kópavogs, Garðabæjar og veitufyrirtækja.

Helstu magntölur eru:

Skering í laus jarðlög 83.800 m3
Bergskering 32.000 m3
Fyllingarefni úr skeringum 21.100 m3
Neðra burðarlag 11.700 m3
Efra burðarlag 5.600 m3
Malbik 22.800 m2
Gangstígar 5.600 m2
Fláafleygar og landmótun 4.800 m3
Hljóðdeyfigarðar 31.000 m3
Efni flutt á losunarstað 62.600 m3
Frágangur fláa 93.500 m2
Hljóðveggur 1.074 m
Lagnaskurðir 7.500 m
Mótafletir 1.340 m2
Járnalögn 40.500 kg
Steinsteypa 384 m3

Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. september 2016.

Útboðsgögn verða seld á geisladiskum hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með miðvikudeginum 27. maí 2015. Verð útboðsgagna er  2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. júní 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.