kjaF.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Bústaðavegur 151 og 153. Gatnagerð og lagnir – Hönnun. Forval nr. 14380
Forvalsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – Frá kl. 11:00 þriðjudaginn 18. desember 2018.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Umsóknum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 föstudaginn 11. janúar 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is
Umfang verks:
Verkefnið felst í verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna gatnagerðar og lagna fyrir Bústaðaveg, götur, stígar og undirgöng, í samræmi við samnefnt deiliskipulag. Svæðið sem um ræðir er við Sprengisand milli Reykjanesbrautar og Stjörnugróf. Heildarlengd gatna á svæðinu er um 500 m, heildarlengd stíga er um 1500 m, lengd undirganga er um 16 m
Nánar tiltekið felst verkefnið í neðangreindu:
- Hönnun á Bústaðavegi ásamt breytingu á tengingu við Reykjanesbraut, hringtorgi, tengingu að Sprengisandi og götu inn á deiliskipulagssvæði þ.m.t. á gangstéttum og bílastæðum
- Hönnun á göngu-og hjólastígum ásamt tröpputengingum
- Hönnun undirganga undir Bústaðaveg
- Hönnun á nýjum stoðvegg ásamt hljóðskerm milli núverandi rampa og göngu-hjólastíg sunnan við Ásenda
- Hönnun vegna landmótunar á grænum svæðum ásamt yfirborðsfrágangi og gróðri
- Hönnun á fráveitu þar með talið blágrænum ofanvatnslausnum í götu.
- Hönnun á hitaveitu og vatnsveitu.
- Hönnun á gatna- og stígalýsingu
- Skiltun og yfirborðsmerkingar
- Vinnustaðamerkingar og aðkoma á verktíma þ.m.t. bráðabirgðaakstursleiðir
- Gerð útboðsgagna
Hönnun á rafveitu, fráveitu, vatnsveitu og hitaveitu verður í samráði við Veitur ohf.
Hönnun á lögnum Mílu verður í höndum Mílu ehf.
Hönnun á lögnum Gagnaveitu Reykjavíkur verður í höndum Gagnaveitu Reykjavíkur.
Hönnunarstjóri er samræmingaðili gagnvart veitum. Hönnuður gerir uppdrætti af sameiginlegum skurðsniðum og ákveður kostnaðarskiptingu í viðkomandi sniðum og fellir inn í útboðs- og verklýsingu og tilboðsskrá gögn frá viðkomandi veitum.
Hönnuður annast gerð heildarkostnaðaráætlana og fellir inn í kostnaðaráætlanir frá veitum.
Til nánari glöggvunar á umfangi og eðli verksins er vísað á skipulagssjá Reykjavíkurborgar þar sem deiliskipulagið er kynnt: http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?numer=14091
- Deiliskipulagsuppdráttur (Bustadavegur_151_og_153_uppdrattur.pdf)
Unnið hefur verið að minniháttar breytingum á deiliskipulaginu í kjölfar kynningarferils og hefur endanlegt skipulag ekki verið staðfest.
Heildarkostnaður framkvæmda vegna verkefnisins: Bústaðavegur 151 og 153 hefur verið gróflega áætlaður 400 m.kr.
Tímaáætlun:
Kaupandi gerir ráð fyrir að fylgja eftirfarandi tímaáætlun vegna verkefnis þessa:
11.01.2019: Umsækjendur skila inn umsókn um þátttöku
18.01.2019: Tilkynning kaupanda um niðurstöður forvals
21.01.2019: Útboðsgögn gefin út til þáttakaenda í lokuðu útboði
24.01.2019: Fyrirspurnarfrestur útrunninn
29.01.2019: Svarfrestur útrunninn
01.02.2019: Opnun verðtilboða í verkhönnun og gerð útboðsgagna
29.03.2019: Hönnunarvinnu skilað til yfirlestrar hjá kaupanda
19.04.2019: Lok hönnunarvinnu og útboðsgögn afhent kaupanda
22.04.2019: Auglýsing framkvæmdaútboðs