F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Esjumelar – Stækkun hverfis. Gatnagerð og lagnir – Hönnun. EES Forval nr. 14373.
Forvalsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – Frá kl. 11:00 þriðjudaginn 18. desember 2018.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Umsóknum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 mánudaginn 14. janúar 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is
Umfang verks:
Verkefnið felst í verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna gatnagerðar, veitulagna (fráveita, vatnsveita, hitaveita, rafveita, gatna- og stígalýsing og blágrænar ofanvatnslausnir), gerð hæðarblaða og gerð grunna fyrir mæliblöð fyrir athafnasvæði Kjalarnesi, Esjumelar-Varmidalur svæði B í samræmi við samnefnt deiliskipulag. Svæðið sem um ræðir er austan svæðis A (núverandi byggðar).
Heildarlengd gatna á svæðinu er um 4100 m.
Nánar tiltekið felst verkefnið í neðangreindu:
- Hönnun á nýjum götum (A-E melar) og endurgerð Norðurgrafarvegar þ.m.t. á gangstéttum og ýmsum götugögnum.
- Landmælingar svæðis og úrvinnsla.
- Hönnun á blágrænum ofanvatnslausnum í götum og opnum svæðum neðan byggðar.
- Hönnun á fjórum settjörnum.
- Hönnun á fráveitu, rafveitu, vatnsveitu og hitaveitu.
- Hönnun á gatna- og stígalýsingu.
- Skiltun og yfirborðsmerkingar.
- Vinnustaðamerkingar og aðkoma á verktíma þ.m.t. bráðabirgðaakstursleiðir.
- Gerð hæðarblaða fyrir lóðir.
- Gerð grunna fyrir mæliblöð.
- Gerð útboðsgagna.
Hönnun á fráveitu, rafveitu, vatnsveitu og hitaveitu verður í samráði við Veitur ohf.
Hönnun á lögnum Gagnaveitu Reykjavíkur verður í höndum Gagnaveitu Reykjavíkur.
Hönnun á lögnum Mílu verður í höndum Mílu ehf.
Hönnunarstjóri er samræmingaraðili gagnvart veitum. Hönnuður gerir uppdrætti af sameiginlegum skurðsniðum og ákveður kostnaðarskiptingu í viðkomandi sniðum og fellir inn í útboðs- og verklýsingu og tilboðsskrá gögn frá viðkomandi veitum.
Hönnuður annast gerð heildarkostnaðaráætlunar og fellir inn í hana kostnaðaráætlanir frá veitum.
Til nánari glöggvunar á umfangi og eðli verksins er vísað á skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þar sem er að finna samþykkt deiliskipulag: http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?numer=14486
- Skipulagsuppdrættir
- Drög að skýrslu um meðhöndlun ofanvatns á Esjumelum
Heildarkostnaður gatnaframkvæmda (án lagna) á Esjumelum, svæði B hefur verið gróft áætlaður 2.400 m.kr
Tímaáætlun:
Kaupandi gerir ráð fyrir að fylgja eftirfarandi tímaáætlun í forvali hönnuða og hönnunarhluta verkefnisins:
14.01.2019: Umsækjendur í forvali skila inn umsókn um þátttöku
21.01.2019: Tilkynning kaupanda um niðurstöður forvals
22.01.2019: Útboðsgögn hönnunar gefin út til þátttakaenda í lokuðu útboði
18.02.2019: Opnun verðtilboða í hönnun
06.06.2019: Hönnunarvinnu skilað til yfirlestrar hjá kaupanda
05.07.2019: Lok hönnunarvinnu og útboðsgögn afhent kaupanda
12.08.2019: Skil mæli- og hæðarblaða