Hafnasamlag Norðurlands óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
- · Steypa 51 ankersplötur.
- · Niðurtekt á grindarmastri, 12 m.
- · Upptekt á grjótvörn, um 900 m3.
- · Dýpkun framan við nýja stálþilslínu niður í kóta -6,0, um 4.000 m3.
- · Niðurrif á Sverrisbryggju framan Bústólpa.
- · Niðurrif og uppsetning fjögurra stormpolla.
- · Reka niður 128 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ32 -750 og ganga frá stagbitum og stögum.
- · Rekstur á 21 tvöfaldar stálþilsplötur af gerðinni AZ20-700 sem bakþil.
- · Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 6.000 m³.
- · Steypa um 216 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
Stálþilsrekstri skal lokið fyrir 1.maí 2019 og verkinu í heild eigi síðar en 1. júlí 2019.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á skrifstofu Hafnasamlags Norðurlands, Fiskitanga á Akureyri, frá og með þriðjudeginum 4. desember 2018. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á skrifstofu Hafnasamlags Norðurlands fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18.desember 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.