Home Fréttir Í fréttum Tíu milljarða fjárfesting hjá Árborg næstu fjögur árin

Tíu milljarða fjárfesting hjá Árborg næstu fjögur árin

158
0
Mynd: Magnús Hlynur/visir.is

Fyrri umræða vegna fjárhagsáætlunar 2019 hjá Sveitarfélaginu Árborg var lögð fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær þar sem gert er ráð fyrir 505 milljóna króna afgangi.
 
Helst ber til tíðinda að gert er ráð fyrir að A-hluti skili 48,5 milljóna króna afgangi og er það í fyrsta sinn frá árinu 2008 sem áætlun fyrir A-hluta er skilað með afgangi, utan þess að gert var ráð fyrir 4 m.kr. afgangi í þeirri áætlun sem lögð var fram fyrir ári síðan.
 
Samkvæmt áætluninni eru álagningarprósentur skatta á íbúðarhúsnæði lækkaðar umtalsvert til að mæta þeirri miklu hækkun sem orðið hefur á fasteignamati í sveitarfélaginu. Þannig lækkar fasteignaskattur úr 0,325% í 0,275%, sem er 15,4% lækkun á skattinum.
 
Skuldaviðmið skv. sveitarstjórnarlögum, eins og það hefur verið reiknað á undanförnum árum, nær nýju lágmarki árið 2019 m.v. framlagða áætlun og verður 122,7%. Breyting hefur þó orðið á lögum um þetta viðmið og reiknast það 106,7% samkvæmt nýjum reglum.
 
„Bættur rekstur mun gera kleift að bæta þjónustu við íbúa og auka þannig velsæld og ánægju í sveitarfélaginu. Myndarlegur rekstrarafgangur er einnig nauðsynlegur svo sveitarfélagið hafi aukna getu til fjárfestinga í nauðsynlegum innviðum á borð við leikskóla, grunnskóla, íþróttahús og fráveitu, sem er mikilvægt þegar fjölgun íbúa er eins hröð og nú gerist í Árborg“, segir í greinargerð með tillögunni.
 
 

<>

Tíu milljarðar í innviði
 
Sveitarfélagið Árborg mun fjárfesta í innviðum fyrir rúmlega 10 milljarða á næstu fjórum árum. Uppbygging íbúðabyggðar í Björkurstykki á Selfossi með um 650 íbúðum og nýjum grunnskóla á svæðinu, uppbygging íþróttamannvirkja við Engjaveg á Selfossi, nýr leikskóli á Selfossi og hreinsistöð fráveitu í Ölfusá verða stærstu einstöku fjárfestingarnar á tímabilinu.
 
„Aldrei áður í sögu sveitarfélagsins hefur verið fjárfest jafn mikið í samfélagslegum innviðum og gert verður á næstu fjórum árum. Til að mæta uppsafnaðri fjárfestingaþörf síðustu ára er mikil fjárfesting framundan á næstu tveimur árum en minnkar á síðari hluta tímabilsins. Meðal annars verður aukinn kraftur verður settur í orku- og vatnsöflun“, segir jafnframt í greinargerðinni.

Heimild: Visir.is