Home Fréttir Í fréttum Fyrstu skóflustungurnar teknar af nýjum miðbæ á Selfossi

Fyrstu skóflustungurnar teknar af nýjum miðbæ á Selfossi

570
0
Guðjón Arngrímsson frá Sigtúni Þróunarfélagi, Ásta Stefánsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Árborg, Gísli Halldór Halldórsson, núverandi bæjarstjóri og Leó Árnason hjá Sigrún Þróunarfélagi tóku fyrstu skóflustungurnar af nýja miðbænum í dag. Mynd: Visir.is/ MAGNÚS HLYNUR

Rign og rok á Selfossi í dag lét menn ekki aftra sig frá því að taka fyrstu skóflustunguna af nýjum miðbæ klukkan 14:00.
 
Nýi miðbærinn verður byggður á svæði sunnan við Ölfusárbrú með fjölbreyttum húsum þar sem þekkt hús víða af landinu verða endurbyggð.

<>

Húsin verða leigð út fyrir fjölbreytta starfsemi en þá er verið að tala um þjónustufyrirtæki, verslanir, veitingastaðir og íbúðir.
 
Borgarverk á Selfossi mun sjá um jarðvegsframkvæmdir en JÁVERK á Selfossi um að byggja húsinu.

Þrettán hús verða í fyrsta áfanga verkefnisins sem verður klár 2020. Sá áfangi mun kosta tæplega tvo milljarða króna.
 
Bæjarráð Árborgar gaf á fundi sínum á fimmtudaginn framkvæmdaleyfi vegna nýja miðbæjarins.

Nýr miðbær mun rísa á Selfossi á næstu árum, þrettán hús verða í fyrsta áfanga.Sigtún Þróunarfélag

„Langrþráður draumur hefur nú ræst með skóflustungunum í dag, ég er í skýjunum með það. Nú koma gröfurnar á svæðið strax eftir helgi og framkvæmdir hefjast á fullum krafti“, segir Leó Árnason, framkvæmdastjóri Sigtrúns Þróunarfélags sem stendur að framkvæmdunum við nýja miðbæinn.

Heimild: Visir.is