Home Fréttir Í fréttum Stærsta hótel á Norðurlandi áfram í vinnslu

Stærsta hótel á Norðurlandi áfram í vinnslu

186
0
Útlit hins nýja hótels eins og það var kynnt í fyrra. TÖLVUTEIKNING: KEA

KEA fjár­fest­ing­ar­fé­lag ætl­ar að byggja 150 her­bergja hót­el við Hafn­ar­stræti 80 á Ak­ur­eyri eða á svo­kallaðri Um­ferðarmiðstöðvar­lóð.

<>

Upphaflega stóð til að framkvæmdir myndu hefjast í ár en Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, segir að nú séu vonir bundnar við að verkið hefjist í vor.

“Framkvæmdir hófust ekki síðasta sumar eins og áformað var vegna þess að væntingar um eðlilega lánsfjármögnun verkefnisins gengu ekki eftir.

Ég vil rekja þá stöðu til ytri aðstæðna þar sem nokkur flugórói hefur verið síðan í vor eins og þjóðin þekkir.

Við erum í samstarfi með öflugum leigutaka í þessu verkefni og við höldum áfram undirbúningi verkefnisins í þeirri von um að hægt verði að hefja verkið næsta vor”.

KEA keypti lóðina fyr­ir um þremur árum en síðan þá hef­ur verið unnið að breyt­ing­um á skipu­lagi lóðar­inn­ar svo af bygg­ingu hót­els geti orðið.

Enn hef­ur ekki verið gefið upp und­ir hvaða vörumerki hót­elið mun starfa en sam­kvæmt til­kynn­ing­u sem KEA sendi frá sér í fyrra, í tengslum við framkvæmdina, þá verður hið 150 herbergja hótel það stærsta sem verður starfrækt á Akureyri og reyndar á Norðurlandi öllu.

Heimild: Turisti.is