Home Fréttir Í fréttum Fer fram á breytingar á samgönguáætlun

Fer fram á breytingar á samgönguáætlun

93
0
Skjáskot af visir.is

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir hörmulegt að horfa upp á fjölda slysa sem hafa átt sér stað á kafla Reykjanesbrautarinnar sem ekki hefur verið tvöfaldaður. Hún fer fram á að breytingar verði gerðar á samgönguáætlun og farið verði í heildstæðar endurbætur á skemmri tíma en nú er lagt til.

<>

Karlmaður lést í hörðum árekstri til móts við Vallahverfið í Hafnarfirði í gær. Bifreiðarnar komu úr gagnstæðri átt og var maðurinn farþegi í annarri þeirra.

Ökumaður bifreiðarinnar hefur verið úrskurðaður í farbann til 23. nóvember. Vegarkaflinn er hluti af Reykjanesbrautinni en hefur ekki verið tvöfaldaður. Slys hafa verið tíð á honum. Rósa segir brýnt að klára tvöföldun brautarinnar til að koma í veg fyrir slys sem þessi.

„Ég veit ekki hvað við höfum oft á undanförnum tveimur til þremur árum sent ályktanir og áskoranir til ríkisvaldsins um að það þurfi að laga þennan kafla á Reykjanesbrautinni. Þarna er gríðarleg slysahætta og því miður alltof mörg mjög alvarleg slys. Þessu verður bara að linna,” segir hún.

Tilbúin með alla hönnun 

Rósa segist átta sig á því að fjármagnið sé takmarkað og bendir á að höfuðborgarsvæðið fái einungis þriðjung af fjárveitingum í samgönguáætlun.

„Hér búa 65 prósent landsmanna, auk þessa mikla ferðamannafjölda sem fer þarna í gegn. Það er því ekki hægt annað en að spyrja sig hvernig stendur á því að fjármunum er skipt þannig.“

Hún segir Hafnarfjarðarbæ tilbúinn með alla hönnun og gera ráð fyrir fjármagni í tvöföldun innan bæjarmarka.

„Í samgönguáætlun er gert ráð fyrir að ákveðinn kafli þarna verði tvöfaldaður á næsta ári. Við erum ánægð með það. Það þarf að gera betur, við þurfum að fara í þetta heildstætt og klára þetta mál. Ekki vera með þennan sífellda bútasaum.

Heimild: Visir.is