Búast má við að veggjöld um Vaðlaheiðargöng sem opnuð verða á næstunni verði allt að tvöfalt hærri en verið hafi um Hvalfjarðargöng og muni skila um 800 milljónum króna á ári.
Þetta á bæði við um fólksbíla og stóra flutningambíla þannig að gjöld verði um 2000 krónur fyrir fólksbíla og allt að 6000 krónur fyrir stóra bíla. Þetta er þó ekki endanlega ákveðið að sögn Valgeirs Bergmann, framkvæmdastjóra Vaðlaheiðarganga.
Morgunblaðið greindi frá verðhugmyndunum í morgun en Valgeir minnir á að gjaldskráin sé enn í mótun.
„Það eiga eftir að koma afsláttarkjör og slíkt fyrir þá sem keyra og nota göngin mikið,“ segir Valgeir. Hann reiknar með um tvöföldu verði á við það sem verið hefur í Hvalfirðinum. Þar hefur stök ferð á fólksbíl kostað 1000 krónur en allt að 3400 krónur fyrir staka ferð stærstu ökutækja. Gjaldtöku í Hvalfirði verður hætt þann 28. september.
Áætluð verklok 30. nóvember.
Rukkun fyrir norðan verður þó með ólíkum hætti. Valgeir segir stefnt á að hafa göngin sjálfvirk að því leyti. Menn geti keypt áskrift á netinu eða með appi þar sem fólk leggur til greiðslukortaupplýsingar.
Valgeir segir að Vaðlaheiðargöng reikni með um 800 milljónum króna á ári í tekjur vegna gjaldtöku.
Um 70 manns vinna nú hörðum höndum að því að ljúka framkvæmdum við Vaðlaheiðargöngin. Verklok eru áætluð 30. nóvember næstkomandi og sagði Valgeir, í samtali við Stöð 2 á dögunum, mikilvægt að festa niður dagsetningu verkloka.
Að neðan má sjá myndband frá því þegar Tryggvi Páll Tryggvason, fréttamaður Vísis norðan heiða, ók í gegnum göngin. Myndbandið er spilað á sexföldum hraða.
Heimild: Visir.is