Miklar byggingaframkvæmdir í miðborginni undanfarin misseri hafa raskað þar umferð og eiga eftir að gera það næstu tvö árin að minnsta kosti. Akstursstefnu hefur verið breytt í Hafnarstræti sem nú er einstefnugata í vestur en í þá átt hefur ekki mátt keyra í götunni í áratugi.
Akstursleiðir eru víða með öðrum hætti í Kvosinni um þessar mundir en fólk hefur átt að venjast, til að mynda í Lækjargötu og nærliggjandi götum. það er orðið flóknara að keyra Lækjargötuna en áður. Það er búið að fækka þar akreinum vegna byggingaframkvæmda á gömlu Íslandsbanka lóðinni og nú mega eingöngu strætisvagnar og hópferðabílar keyra vestur eftir Vonarstrætinu.
Sett hafa verið upp umferðarljós við Iðnó til að stýra umferð austur eftir Vonarstræti út að Lækjargötu. Þar hefur akreinum verið fækkað um tvær og búið að mála nýjar krókaleiðir framan við Íslandsbanka lóðina. Í sumar hefur Pósthússtræti verið göngugata og því lokað fyrir bílaumferð frá Hótel Borg að Tryggvagötu. En nú er búið að opna Pósthússtrætið og á sama tíma búið að snúa við einstefnuátt frá austri til vesturs í Hafnarstræti.
Það hefur nú ekki verið í áratugi sem bílar hafa mátt keyra vestur eftir Hafnarstræti. Hvers vegna er það núna?
„Þetta er aðallega vegna framkvæmda í Tryggvagötu og við Hafnartorgið. Vegna framkvæmdanna þar þurfa gatnamótin við Tryggvagötu og Pósthússtræti að vera lokuð,“ segir Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir yfirverkfræðingur hjá Reykjavíkurborg.
Hvað heldur þú að þetta ástand vari lengi?
„Það er pínu óljóst út af steinbryggjunni sem kom í ljós þegar menn fóru að grafa þarna í gatnamótunum. Þetta tefst eitthvað aðeins en menn eru að gera ráð fyrir að þetta verði október, nóvember. Þá verði hægt að fara að aka um Tryggvagötu na aftur með eðlilegum hætti,“ segir Guðbjörg Lilja.
En þótt framkvæmdum ljúki bráðlega við Hafnartorg er byggingaframkvæmdum langt í frá lokið í Kvosinni. Enn á eftir að byggja á Íslandsbankalóðinni, þá eru framkvæmdir að hefjast við Hótel við gamla Landsímahúsinu við Austurvöll. Á næsta ári verður svo hafist handa við að byggja nýja skrifstofubyggingu Alþingis.
„Jú, jú það eru framkvæmdir núna í borginni og verða áfram næstu ár. Við erum í umbreytingatíma, þetta er allt að þróast og breytast. Ég held samt að menn muni finna minna fyrir framkvæmdunum við alþingishúsið,“ segir Guðbjörg Lilja.
Heimild: Visir.is