Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Nýbygging við Höfðaberg, útibú frá Lágafellskóla, 4-5. Áfangi.
Um er að ræða byggingu 4.-5. áfanga við útibú frá Lágafellsskóla fyrir börn á aldrinum 5-7 ára. Reisa skal tengibyggingu úr límtrébitum og burðavið, sem tengist núverandi byggingu og fjórum kennslustofum, sem verða flutt á svæðið á verktíma. Verkið felst í jarðvinnu fyrir fjórar kennslustofur og tengibyggingar ásamt því að byggja tengibyggingu. Frágangur innanhúss og utan er innifalinn sem og lóðarfrágangur næst nýbyggingunum svo sem landmótun, hellulagnir, malbikun og grassáning. Einnig er flutningur og niðursetning leiktækja ásamt girðingum innifalinn. Verktaki skal mála kennslustofurnar að utan og innan.
Helstu magntölur eru: | |
Steyptir hnallar | 44 stk |
Þak- og glófbitar | 546 lm |
Tölvustrengir | 770 lm |
Vatnslagnir | 427 lm |
Fráveitulagnir | 253 lm |
Hellulögn og malbik | 263 m2 |
Þökur og sáning | 960 m2 |
Timburpallar | 77 m2 |
Gröftur og fylling | 930 m3 |
Verkinu er skipt í 2. hluta.
Verkhluta 1. skal að fullu lokið 15. ágúst 2015.
Verkhluta 2. skal að fullu lokið 1. júlí 2016.
Útboðsgögn á geisladiski verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með þriðjudeginum 12. maí 2015.
Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar en þriðjudaginn 26. maí 2015, kl. 14:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.