F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Laugardalur stígar. Suðurlandsbraut – Holtavegur. Útboð nr. 14304.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í breytingum á hluta núverandi göngustíga meðfram Engjavegi að Fjölskyldu og húsdýragarðinum og lagningu nýs hjólastígar samsíða göngustíg frá Suðurlandsbraut að Holtavegi.
Um er að ræða:
- Lagningu nýrra göngu- og hjólastíga, jarðvegsskipti, fyllingu og yfirbyggingu.
- Færslu ljósastólpa og fráveitulagna
- Malbikun hjólastígs og gönguleiðar
- Yfirborðsmerkingar og skiltun
- Yfirborðsfrágang (hellu- og þökulagnir)
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 9:00 þann 1. ágúst 2018.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 15. ágúst 2018.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is