Home Fréttir Í fréttum 31.07.2018 Bústaðavegur milli Kringlumýrarbrautar og Veðurstofuvegar. Göngu- og hjólastígar

31.07.2018 Bústaðavegur milli Kringlumýrarbrautar og Veðurstofuvegar. Göngu- og hjólastígar

228
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Bústaðavegur milli Kringlumýrarbrautar og Veðurstofuvegar. Göngu- og hjólastígar, útboð nr.14295.

Stutt yfirlit yfir verkið:

  • Upprif á núverandi yfirborði, m.a. stígum og tröppum
  • Gerð göngu- og hjólastígs milli Kringlumýrarbrautar og Veðurstofuvegar ásamt aðlögun á aðliggjandi stígum.
  • Gerð stoðveggja og trappa úr forsteyptum einingum.
  • Lagning hitaveitulagna, gröftur fyrir háspennustrengjum ásamt niðursetning vatns- og grjótsvelgja.
  • Götulýsing við stíga.
  • Lagning snjóbræðslulagna og breytingar á eldri kerfi.

Magntölur:

  • Upprif malbiks:  610 m2
  • Upprif steypu:  526 m2
  • Uppúrtekt:  2900 m3
  • Fylling:  1800 m3
  • Mulningur:  2010 m2
  • Malbik:  2130 m2
  • Þökulögn:  2120 m2
  • Stoðveggur:  48 m2
  • Forsteypt þrep:  20 stk
  • Hitaveitulagnir:  84 m
  • Snjóbræðslulagnir:  380 m
  • Jarðstrengir:  800 m
  • Ljósastólpar:  23 stk.

Verklok: 30. nóvember 2018.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 9:00 þann 17. júlí 2018.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 31. júlí 2018.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is