Home Fréttir Í fréttum Bygg­ing­ar­kran­ar áber­andi í borg­inni

Bygg­ing­ar­kran­ar áber­andi í borg­inni

164
0
Mynd: mbl.is/​​Hari

Bygg­ing­ar­kran­ar í borg­inni end­ur­spegla þær miklu fram­kvæmd­ir sem í gangi eru. Þeir hafa ekki verið fleiri í sex ár.

<>

Í júní­mánuði í ár skoðaði Vinnu­eft­ir­litið 47 bygg­ing­ar­krana en 17 á sama tíma í fyrra. Þá virðast bygg­ing­ar­kran­ar sem skoðaðir eru á ári á góðri leið með að ná sama fjölda og þegar mest lét árið 2007.

Nú hafa verið skoðaðir 169 bygg­ing­ar­kran­ar það sem af er ári. Haldi þró­un­in áfram eru lík­ur á því að skoðaðir bygg­ing­ar­kran­ar í ár verði 328 tals­ins.

Heimild: Mbl.is