Home Fréttir Í fréttum Kvika yfirtekur ekki starfsmannaleiguna og verktakastarfsemina af Gamma

Kvika yfirtekur ekki starfsmannaleiguna og verktakastarfsemina af Gamma

440
0

Meðal þeirra eigna sem eru undanskildar í yfirtöku Kviku banka á Gamma eru Elja þjónustumiðstöð atvinnulífsins ehf. og Domus eignir slhf. og eignir sem tengjast verktakastarfsemi.

<>

Elja er starfsmannaleiga og í Domus eignum eru ýmsar fasteignir sem tengjast rekstri starfsmannaleigunnar.

Eins og greint var frá fyrr í dag hefur verið undirrituð viljayfirlýsing um kaup Kviku banka á öllu hlutafé Gamma fyrir 3.750 milljónir króna.

Greiðsla kaupverðsins skiptist þannig að Kvika banki greiðir hluthöfum Gamma 1.057 milljónir króna með reiðufé, 1.443 milljónir króna í formi árangurstengdrar greiðslu og afgangurinn greiðist með hlutabréfum í Kviku banka.

Í sameiginlegri yfirlýsingu Kviku og Gamma vegna viðskiptanna segir að núverandi hluthafar Gamma muni kaupa „tilteknar eignir af félaginu“ sem verði undanskildar í viðskiptunum.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar eru þessar eignir starfsmannaleigan Elja þjónustumiðstöð atvinnulífsins ehf. og Domus eignir slhf. og eignir sem tengjast verktakastarfsemi.

Arnar Hauksson, bróðir Gísla Haukssonar annars stofnenda Gamma, hefur stýrt starfsmannaleigunni Elju. Gísli hætti sem forstjóri Gamma í mars á þessu ári en hann á rúmlega 33 prósenta hlut í félaginu.

Gísli lét að störfum að eigin ósk en áður en hann hætti hjá Gamma kom upp ágreiningur meðal hluthafa Gamma vegna misheppnaðrar útrásar fyrirtækisins og mikils rekstrarkostnaðar sem var kominn algjörlega úr böndunum.

Rekstrarkostnaður annar en laun nam 842 milljónum króna hjá Gamma í fyrra og jókst um 300 milljónir króna milli ára.

Heimild: Visir.is