Home Fréttir Í fréttum Skóflustunga tekin af nýju iðnaðarhúsnæði á Blönduósi

Skóflustunga tekin af nýju iðnaðarhúsnæði á Blönduósi

175
0
Fyrsta skóflustungan. Mynd: Róbert Daníel Jónsson

Fyrsta skóflustungan að nýju iðnaðarhúsnæði, við Ennisbraut 5 á Blönduósi, var tekin í gær.

<>

Fyrirtækið Húnaborg ehf. byggir 372m2 iðnaðarhúsnæði sem skiptist í fimm einingar, hver eining verðum u.þ.b. 74m2. Húsið verður byggt á staðsteyptar undirstöður úr límtrésburðarvirki áklætt steinullareiningum.

Í byrjun árs voru fjórar umsóknir um byggingarleyfi frá Húnaborg ehf. samþykktar í skipulags-, umhverfis- og umferðarnefndar Blönduósbæjar.

Húnaborg ehf. stefnir á að byggja tvö atvinnu-og eða geymsluhúsnæði sem og tvö raðhús á Blönduósi.

Heimild: Feykir.is