Home Fréttir Útboð 27.05.2015 Endurbætur á Hringvegi (1) á Svalbarðsströnd

27.05.2015 Endurbætur á Hringvegi (1) á Svalbarðsströnd

137
0
Svalbarðsströnd

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í styrkingu og endurbætur á 1,8 km kafla á Hringvegi (1). Kaflinn hefst um 135 m sunnan við Sveinbjarnargerðisveg (8555) með endastöð um 400 m sunnan við gatnamót Hringvegar og Grenivíkurvegar (83). Í útboðinu felst m.a. breikkun vegar, lenging ræsa, þurrfræsing og lagning tvöfaldrar klæðingar.

<>

Helstu magntölur eru:

Fylling 850 m3
Skering 1.400 m3
Fláafleygar 1.400 m3
Burðarlag 0/22 mm (efni og vinna) 750 m3
Styrktarlag 0/63 mm (efni og vinna) 1.250 m3
Þurrfræsing 13.000 m2
Tvöföld klæðing (vinna) 14.000 m2
Lenging ræsa 10,5 m
Endafrágangur ræsa 5 Stk.
Frágangur fláa 21.000 m2

 

1. áfangi:  Verktaki skal ljúka breikkun vegar, lengingu ræsa og frágangi fláa eigi síðar en 25. júlí 2015.

2. áfangi:  Verktaki skal vinna við þurrfræsun, afréttingu burðarlags og lagningu tvöfaldrar klæðingar á tímabilinu 10. ágúst – 1. september 2015. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2015.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðarinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og  með þriðjudeginum 12. maí 2015. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 27. maí 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.