Heildarvirði kaupa Reita Vínlandsleið ehf., nemur 5,9 milljörðum íslenskra króna en um er að ræða 18 þúsund leigufermetra.
eitir fasteignafélag hf. hefur ákveðið að ganga til samninga við eigendur Vínlandsleiðar ehf., um kaup Reita á félaginu sem á rúmlega 18 þúsund leigufermetra. Félagið á flest húsin við götuna Vínlandsleið í Grafarholti, það er númer 2-4, 6-8, 12-14 og númer 16, auk Norðlingabrautar 14.Heildarvirði kaupanna er samtals 5.900 m.kr. og verður að fullu fjármagnað með handbæru fé, lánsfé og yfirtöku áhvílandi skulda.
Eignirnar eru í útleigu til 12 aðila með 100% útleiguhlutfall. 82% leigutekna eru við fimm opinbera aðila eða aðila sem eru á fjárlögum ríkisins en þeir eru: Sjúkratryggingar Íslands, Matís ohf., Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Lyfjastofnun og Fjölmennt.
Leigutekjur á ársgrunni nema um 440 milljónum króna og er meðaltími leigusamninga um 13,5 ár. Leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 350 milljónir króna á ársgrundvelli.
Afhending eignanna mun fara fram þegar fyrirvörum vegna viðskiptanna hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um niðurstöður áreiðanleikakannana, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki stjórnar Reita á kaupunum.
Heimild: Vb.is