F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, Veitna ohf., Mílu ehf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Úlfarsárdalur – stækkun hverfis. Gatnagerð og lagnir 2. áfangi. Útboð nr. 14248
Um er að ræða:
- Jarðvegskipti í nýjum götum, torgi og ofanvatnsskurðum
 - Jarðvegsskipti í bílastæðagötum í reitum F og H
 - Lagningu fráveitu (skolp)-, vatns- og hitaveitulagna
 - Lagningu raf-, fjarskipta og ljósleiðaralagna
 - Uppsetning ljósastaura
 - Formun og frágangur ofanvatnsskurða
 - Lögn ræsa frá ofanvatnsskurði inn á lóðareiti
 - Lögn ræsa undir götur og innkeyrslur ásamt endafrágangi við ofanvatnsskurði
 - Tengingu Gæfutjarnar inn á Skyggnistorg og Rökkvatjarnar inn á Skyggnisbraut
 - Malbikun gatna, neðra malbikslag
 
Helstu magntölur eru:
- Uppúrtekt, efni nýtt á svæðinu 15.500 m3
 - Uppúrtek, efni á tipp 10.000 m3
 - Losun á klöpp 1.650 m3
 - Undirfylling, burðarhæf 31.000 m3
 - Grúsarfylling 7.600 m3
 - Fráveitulagnir (skolp) 628 m
 - Fráveitubrunnar 9 stk
 - Vatnsveitulagnir 1.315 m
 - Hitaveitulagnir 1.377 m
 - Lagnaskurðir, hitav. rafm. og fjarsk.lagnir 2014 m
 - Reising ljósastaura 24 stk
 - Mulningur 5330 m2
 - Malbik 5040 m2
 - Frágangur ofanvatnsskurða 1850 m2
 - Ræsi undir götur vegna ofanvatns Ø250 188 m
 
Skiladagur verksins er 1. nóvember 2018.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá þriðjudeginum 24. apríl 2018 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00, þann 9. maí 2018.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is
		
	











