Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Verksamningur nýs íþróttahúss í Grindavík undirritaður

Verksamningur nýs íþróttahúss í Grindavík undirritaður

350
0
Mynd: Grindavik.is

Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkurbæjar og Magnús Guðmundsson eigandi Grindarinnar, skrifuðu í vikunni undir verksamning fyrir nýtt íþróttahús í Grindavík. Um er að ræða rúmlega 2.000 m2 byggingu sem mun rísa norðan megin við núverandi íþrótthús. Framkvæmdir á svæðinu eru þegar hafnar og er jarðvinnu nú lokið. Fyrirhuguð verklok eru í upphafi árs 2019.

<>

Byggingin skipist í þrjá hluta:

A. 1. hæð mun innihalda forrými sem tengir íþróttamiðstöð og tengigang við nýjan
íþróttasal ásamt búningsaðstöðu, áhaldargeymslu, afgreiðslurými, ræstiherbergi
ásamt stigagang og lyftu.

B. 2. hæð mun innihalda stigarými og lyftu ásamt fjölnotasal, salernisaðstöðu,
lagnarými og stiga að þriðju hæð.

C. Tæknirými mun verða staðsett á þriðju hæð byggingarinnar.
Heimild: Grindavik.is