Home Fréttir Í fréttum 27.03.2018 Austurbæjarskóli – Endurnýjun á þaki 2018

27.03.2018 Austurbæjarskóli – Endurnýjun á þaki 2018

240
0
Reykjavík.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Austurbæjarskóli – Endurnýjun á þaki 2018 – Útboð nr. 14202.

Verkið felst í:

endurnýjun á koparklæðningu, borðaklæðningu og þakpappa, sem og þakgluggum, snjógrindum, þakrennum og þakniðurföllum á norðurþekju norðurálmu skólans.

Helstu magntölur eru:

Verkþáttur Ein. Magn
Rif og hreinsun m2 210
Endurnýjun borðaklæðningar m2 20
Pappalögn m2 210
Asfaltsdúkur á þakflöt m2 210
Læst koparklæðning m2 210
Þakrennur m 35
Þakniðurföll m 30
Þakgluggar stk 14
Snjógrind á þak m 35

Verklok eru 17. ágúst 2018.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:00 þann 8. mars 2018.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þann 27. mars 2018.

ATH.: Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is