Home Fréttir Í fréttum 27.03.2018 Brú á Norðlingafljót – smíði stálbita

27.03.2018 Brú á Norðlingafljót – smíði stálbita

225
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í smíði stálbita fyrir nýja brú á Norðlingafljót á Arnarvatnsvegi. Ryðverja skal stálið og því skilað á lóð Vegagerðarinnar í Borgarnesi í samráði við verkkaupa.

<>

Helstu magntölur eru:

  • Stálvirki                               21,3 tonn
  • Ryðvörn                                 238,3 m2
  • Flutningur stálbita                 21,3 tonn

Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. júlí 2018.

Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 12. mars 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. mars 2018 og verða þau opnuð þar 14:15 þann dag.