Home Fréttir Í fréttum Sex milljónir í bætur vegna myglu

Sex milljónir í bætur vegna myglu

293
0

Seljandi íbúðarhúsnæðis í Hörgársveit þarf að greiða kaupendum eignarinnar sex milljónir í bætur. Húsið var keypt árið 2014 en Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra taldi húsið óíbúðarhæft vegna ónýtrar skólplagnar og myglu tveimur árum eftir að eignin var seld.

<>

Húsið var sett á sölu árið 2014 og í söluyfirliti, sem dagsett var 27. janúar 2005, kom fram að húsið þarfnaðist utanhúsviðgerða, gluggar væru ónýtir í risi. Áréttað var að húseignin þarfnaðist „einhverra endurbóta“ auk þess sem að kom fram að nýleg skólplögn væri frá húsi og ný rotþró.

Kaupendur skoðuðu húsið í tvígang áður en gengið var frá kaupunum. Hélt seljandinn því fram að hann hafi ítrekað fyrir kaupendunum við vettvangsskoðanirnar að ráðast þyrfti á endurbætur á eigninni, meðal annars þyrfti að ráðast í endurbætur á útveggjum vegna sprungna, sem og að laga leka á rishæð hússins.

Í skýrslu sem tekin var af kaupendum kom fram að vegna orða seljandans hafi þeim orðið ljóst að endurbætur og viðhald væri nauðsynlegt. Kváðust þeir hins vegar „hafa staðið í þeirri trú að ekki þyrfti að grípa til meiriháttar bráðaaðgerða eða að um „eitthvað risavandamál“ væri að ræða.“

Fljótlega eftir kaupin fóru að renna tvær grímur á kaupendurna. Urðu kaupendurnir varir við stíflu í frárennslinu frá salerni í kjallarahluta eignarinnar sumarið 2014. Síðar kom í ljós að skólplögnin var ónýt, sprungur voru í veggjum og myglusveppur eða annar sveppagróður fannst í eignini.

Höfðu kaupendurnir samband við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra sem skoðaði eignina og komst að þeirri niðurstöðu að ástand húseignarinnar hafi verið þannig að það væri óíbúðarhæft. Fluttu kaupendurnir úr íbúðinni í kjölfar niðurstöðu Heilbrigðiseftirlitsins.

Dómskvaddir matsmenn voru kallaðir til en kaupendurnir fóru fram á að kaupsamningnum yrði rift vegna stórfelldra galla á eigninni. Var það niðurstaða matsmannanna að viðgerð á húsinu myndi kosta átta milljónir.

Dómur héraðsdóms Norðurlands Eystra, sem féll í desember, studdist við matsskýrslu matsmannanna og útreikninga þeirra. Var það mat dómsins að um annmarka væri að ræða á húseigninni og að kaupendurnir ættu rétt á bótum vegna þeirra galla sem komu í ljós.

„Þessir gallar eru hins vegar að áliti dómsins í heild sinni ekki svo veruleg vanefnd að réttlætt geti riftun kaupsamnings aðila,“ segir í dómi héraðsdóms.

Þarf seljandinn því að greiða kaupendum 6,1 milljón í skaðabætur en málskostnaður í málinu fellur niður.

Heimild: Visir.is