Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir hafnar á iðnaðarlóðinni á Bakka

Framkvæmdir hafnar á iðnaðarlóðinni á Bakka

122
0
MYND/TIMERULES.ORG

Fyrstu framkvæmdir á iðnaðarlóðinni á Bakka við Húsavík eru hafnar, á ábyrgð þýska félagsins PCC, sem stefnir að lokaákvörðun um kísilver í kringum næstu mánaðamót.

<>

Fyrir Þingeyinga, sem beðið hafa eftir iðnaðaruppbyggingu við Húsavík, eru þetta langþráð tímamót. Vinnuvélarnar eru mættar á Bakka og eru sterk vísbending um að vart verði aftur snúið úr þessu. ÞS-verktakar frá Egilsstöðum eru byrjaðir að legga vinnuveg af þjóðveginum og inn á iðnaðarlóðina svo unnt sé að hefja jarðvegsframkvæmdir vegna kísilvers PCC í júnímánuði. Vegagerðin kostar milli 30 og 40 milljónir króna og er á vegum sveitarfélagsins Norðurþings en PCC ábyrgist kostnaðinn.

Búist er við að umfjöllun Eftirlitsstofnunar EFTA um hugsanlegan ríkisstuðning í orkusamningum ljúki síðar í mánuðinum og að þýska félagið muni í framhaldi af því taka endanlega ákvörðun um að reisa verksmiðjuna, væntanlega öðru hvoru megin við næstu mánaðamót.

Heimild: Vísir.is