Home Fréttir Í fréttum 27.05.2015 Viðbygging og endurbætur á Klettaskóla. EES Forval.

27.05.2015 Viðbygging og endurbætur á Klettaskóla. EES Forval.

82
0

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir umsóknum verktaka um að fá að taka þátt í lokuðu útboði vegna:

<>

Viðbygging og endurbætur á Klettaskóla – EES Forval nr. 13468.

Verkið samanstendur af þremur meginhlutum. Í fyrsta lagi er nýbygging norðvestan við núverandi hús, sem inniheldur íþróttahús og sundlaug, hátíðarsal og aðalanddyri. Í öðru lagi er félagsmiðstöð í nýbyggingu austan við núverandi hús. Í þriðja lagi er létt viðbygging sem kemur ofan á miðálmu núverandi húss og inniheldur nýja stjórnunardeild. Í fjórða lagi er endurgerð núverandi húss að innan ásamt lítilsháttar ytri breytingum. Endurgerðin er mismikil eftir húshlutum, mestu er breytt í vestur- og suðurálmu, en nokkrar breytingar eru einnig í austur- og miðálmu.

Forvalsgögn á geisladiski verða seld á 3.000 kr. frá þriðjudeginum 5. maí 2015 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, 1. hæð, Borgartúni 12–14, 105 Reykjavík.

Umsóknum  skal skila eigi síðar en: Kl. 14:00 miðvikudaginn 27. maí 2015 í Borgartún 12-14, 105 Reykjavík. Umsóknum skal skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar.