Home Fréttir Í fréttum 27.02.2018 Einangrunargler – Framleiðsla og afhending – útboð nr. 14154

27.02.2018 Einangrunargler – Framleiðsla og afhending – útboð nr. 14154

118
0
Mynd: Reykjavik.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Einangrunargler – Framleiðsla og afhending – útboð nr. 14154

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Um er að ræða framleiðslu og flutning glers á ísetningarstað í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar. Þetta útboð á við endurglerjun vegna rúðubrota og annarra glerskipta sem til koma vegna skemmda eða breytinga.  Áætluð heildar glernotkun í viðhaldi fasteigna borgarinnar er um 1600 m2 á ári en getur verið talsvert sveiflukennd milli ára, eftir ástandi í þjóðfélaginu.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:00 þann 9. febrúar 2018.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 27. febrúar 2018.