Frestur sem sjö arkitektateymi fengu til að skila inn frumtillögum að hönnun nýbyggingar fyrir Landsbankann við Austurhöfn í Reykjavík rann út í gær. Öll nema eitt skiluðu inn tillögum til bankans í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum munu bankaráð bankans og bankastjórn nú fara yfir tillögurnar. Þeim til ráðgjafar verður þriggja manna ráðgjafaráð sem í sitja G. Oddur Víðisson arkitekt, Halldóra Vífildóttir arkitekt og Valgeir Valgeirsson verkfræðingur. Reikna má með að val á tillögu verði tilkynnt í lok febrúar.
Í september á síðasta ári auglýsti bankinn eftir arkitektum til að hanna nýbygginguna. Alls lýstu 26 arkitektateymi yfir áhuga á að taka þátt í hönnun hússins en sjö teymi voru valin til þess að skila inn tillögum.
Upphaflega fengu teymin sjö frest til 11. janúar til þess að skila inn tillögum en fresturinn var framlengdur til 19. janúar. Afþakkaði eitt teymana boð bankans um að skila inn tillögu.
Teymin sem fengin voru til þess að skila in tillögum en MVRDV og Basalt arkitektar skiluðu ekki inn tillögu:
• Arkþing og C.F. Møller
• BIG og Arkiteó í samstarfi við BIG Engineering, VSÓ ráðgjöf, Dagný Land Design og Andra Snæ Magnason
• Henning Larsen og Batteríið arkitektar
• Kanon arkitektar ehf. og Teiknistofan Tröð ehf.
• MVRDV og Basalt arkitektar
• PKdM arkitektar
• Teymið – A2F arkitektar, Gríma arkitektar, Kreatíva teiknistofa, Landmótun og Trivium
Nýjar höfuðstöðvar Landsbankans hafa verið í deiglunni í um áratug en komið hefur fram að stjórnendur bankans telji töluverða hagkvæmni felast í því að sameina starfsemi bankans í miðborg Reykjavíkur, sem nú er dreifð um miðborgina á mismunandi stöðum, í eitt hús.
Árið 2007 ákvað bankinn að byggja nýjar höfuðstöðvar í miðbæ Reykjavíkur. Efnt var til hönnunarsamkeppni og voru úrslitin kynnt 2008. Vakti vinningstillagan töluverða athygli fyrir framúrstefnulega hönnun. Teiknistofa Danans Bjarke Ingels, BIG, teiknaði sigurtillögu samkeppninnar með íslensku stofunni Arkiteó en Andri Snær Magnason kom einnig að hönnun hennar.
Eins og sjá má hér að ofan skiluðu BIG, Arkiteó og Andri Snær inn tillögu á nýjan leik eftir að hafa borið sigur úr býtum árið 2008.
Áætlanir um byggingu nýrra höfuðstöðva Landsbankans voru hins vegar settar á ís eftir hrunið 2008 en endurvaktar fyrir nokkrum árum. Árið 2015 tilkynnti bankinn um að aftur yrði efnt til hugmyndasamkeppni um nýjar höfuðstöðvar bankans.
Árið áður hafði bankinn keypt byggingarrétt við Austurhöfn fyrir nýjar höfuðstöðvar sínar á 957 milljónir króna.
Áætlanir bankans mættu þó töluverðri mótstöðu í samfélaginu, ekki síst vegna kostnaðar sem þá var áætlaður átta milljarðar króna. Meðal þeirra sem gagnrýndu áætlanir bankans voru þá verandi stjórnarþingmennirnir Elín Hirst og Vigdís Hauksdóttir.
Var málið sett í biðstöðu og nánari skoðun þangað til í fyrra þegar bankaráð Landsbankans tók ákvörðun um að byggja ætti nýjar höfuðstöðvar á lóð bankans við Austurhöfn.
Er gert ráð fyrir að bankinn muni nýta um 60 prósent af því húsnæði sem byggt verður og mun það sem eftir stendur verða selt eða leigt. Er áætlað að verkið kosti bankann um níu milljarðar en sé tekið tillit til þess að hluti hússins verði leigður eða seldur muni kostnaður bankans vera um 5,5 milljarðar.
Líkt og sjá má á yfirlitsmyndinni hér fyrir ofan er lóð Landsbankans við Hörpu og í grennd við þar sem nú er verið að reisa Mariott-hótel ásamt íbúðar- og verslunarhýsnæði. Stuttu frá eru nýjar byggingar á Hafnartorgi langt komnar og því ljóst að þegar framkvæmdunum sem hér hafa verið nefndar verður lokið muni svæðið í kringum Hörpu og í miðborg Reykjavíkur hafa tekið stakkaskiptum.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af nokkrum tillögum úr hugmyndasamkeppninni frá 2008.