Home Fréttir Í fréttum Vilja reisa 110 metra útsýnisvita í einkaframkvæmd á Sæbraut

Vilja reisa 110 metra útsýnisvita í einkaframkvæmd á Sæbraut

132
0
"Til þess að fólk geti öðlast skilning á loftslaginu þurfum við að endurvekja tengslin milli veðurs og loftslags, loftslags og fólks.“ Mynd/Tvíhorf/Gagarín

Reykjavíkurborg hefur nú til skoðunar tilboð frá Reitum fasteignafélagi ehf. um að reistur verði gríðarhár útsýnisturn við Sæbraut.

<>

Samkvæmt kynningarefni sem fylgir erindinu og unnið er af margmiðlunarfyrirtækinu Gagarín og Tvíhorfi arkitektum á útsýnisturninn að ná 110 metra yfir sjávarmál. Þar með myndi hann ná jafn hátt og hin 75 metra háa Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti.

Turn Hallgrímskirkju hefur á undanförnum árum skapað sókninni hundraða milljóna króna tekjur í aðgangseyri, þær námu 238 milljónum á árinu 2016. Það virðist þannig vera eftir talsverðu að slægjast fjárhagslega.

„Útsýnismannvirki eru vel þekkt í borgum víða um heim og draga jafnan til sín fjölda fólks sem eftirsóknarverð upplifun,“ segir í erindi Reita. Borgin og Faxaflóahafnir myndu síðan eignast turninn endur­gjaldslaust eftir 25 til 30 ár. Sagt er að tekið yrði hóflegt gjald fyrir að fara upp í turninn sem standa eigi undir kostnaði á meðan mannvirkið sé í eigu Reita.

„Að því tímabili loknu gera Reitir ráð fyrir að vitinn gæti orðið góð tekjulind fyrir borgina. Sú hugmynd hefur jafnframt komið upp að hluti af aðgangseyri í vitann myndi renna í sjóð sem ætlað væri að mæta kostnaði við hreinsun strandlengjunnar meðfram Reykjavík.“

Í bréfi Reita er vitnað til þess að þegar liggi fyrir tillaga Faxaflóahafna að innsiglingarvita norðan Höfða á upphækkuðum grjótgarði meðfram Sæbraut. Reitir segjast vilja vinna með Reykjavíkurborg og Faxaflóahöfnum að „útvíkkun á hugtaki“ vitans og færa hann ofar. Búin yrði til ný upplifun þar sem sýning og upplýsingaveita sameinist í útsýnis- og fræðsluvita – Veðurvitanum. „Útsýnisvitinn inniheldur og er í raun sýning um eitt helsta hugðarefni Íslendinga – veðrið.“

Þess má geta að í gær skrifuðu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, undir viljayfirlýsingu um umfangsmestu uppbyggingu á Kringlusvæðinu frá því Kringlan var opnuð 1987.

Heimild: Visir.is