Home Fréttir Í fréttum Tugþúsundir starfa í hættu hjá breskum verktakarisa

Tugþúsundir starfa í hættu hjá breskum verktakarisa

43
0
Carillion er annað stærsta verktakafyrirtæki Bretlands. Mynd: vísir/getty

Breska verktakafyrirtækið Carillion er á leiðinni í þrot og eru störf 43 þúsund í hættu. Viðræður þessa annars stærsta verktaka Bretlands, lánveitenda og breska ríkisins um að bjarga fyrirtækinu sigldu í strand um helgina. BBC greinir frá.

<>

Skuldir hafa hrannast upp hjá Carillion undanfarið eftir misheppnaða samninga í hinum ýmsu verkefnum. Fyrirtækið hefur til að mynda komið að verkefnum á borð við HS2-hraðlestarlínuna á milli London, Birmingham, Leeds og Manchester en einnig að rekstri skóla og fangelsa. Þannig stendur breska ríkið nú frammi fyrir því að þurfa að spýta inn fjármagni til þess að halda opinberri þjónustu sem fyrirtækið hefur komið nálægt gangandi.

Phillip Green, stjórnarformaður Carillion, segir þetta mikil sorgartíðindi fyrir fyrirtækið og starfsmenn þess. Þá hafa starfsmenn verið hvattir til þess að halda áfram að mæta til vinnu og þeir fullvissaðir um að þeir muni fá greitt. Mikilvæg verkefni séu framundan og þá sérstaklega í kringum hinn opinbera geira.

Starfsmenn Carillion eru, sem fyrr segir, 43 þúsund talsins á heimsvísu en innan Bretlands eru þeir 20 þúsund. Ekki er enn ljóst hvaða áhrif staða fyrirtækisins mun hafa á starfsmenn þess.

Heimild: Visir.is