Home Fréttir Í fréttum Aukið fé í Skriðdal og Grindavíkurveg

Aukið fé í Skriðdal og Grindavíkurveg

56
0
Frá Grindavíkurvegi. Mynd/Otti Sigmarsson

Alþingi samþykkti sl. fimmtudag að bæta 755 milljónum króna til samgöngumála í atkvæðagreiðslu eftir 2. umræðu um fjárlagafrumvarpið, samkvæmt tillögu meirihluta fjárlaganefndar. Þetta þýðir að fyrirhugaður niðurskurður samgönguáætlunar mildast sem þessu nemur. Eftir sem áður þarf að skera vegaframkvæmdir á næsta ári niður um 6,2 milljarða króna, frá því sem áður hafði verið boðað í samgönguáætlun.

<>

Í nefndaráliti fjárlaganefndar, sem kynnt var í gær, var viðbótin eyrnamerkt þremur verkefnum. Í fyrsta lagi fara 480 milljónir króna til þess að leggja bundið slitlag á veginn um Skriðdal á Austurlandi og endurbæta hann. Í öðru lagi fara 200 milljónir króna til endurbóta á Grindavíkurvegi vegna umferðaröryggismála. Loks fara 75 milljónir króna til almenningssamgangna á landsbyggðinni.

Nýr samgönguráðherra hefur lýst gildandi samgönguáætlun sem óheppilegum óskalista með of miklum væntingum, sem allir vissu að erfitt yrði að fjármagna, og boðað nýja samgönguáætlun á vorþingi. Þar mun skýrast hvaða verkefni verður unnt að ráðast í.

Stöð 2 greindi í vikunni frá helstu verkefnum sem að öllum líkindum lenda undir niðurskurðarhnífnum á næsta ári. Þau eru breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi, breikkun Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss, endurbygging vega á Dynjandisheiði, í Gufudalssveit, Árneshreppi, Bárðardal og til Borgarfjarðar eystra. Þá verður skorið af Dettifossvegi og brú yfir Hornafjörð.

Heimild: Visir.is