Home Fréttir Í fréttum Samgönguáætlun sturtað niður í sjö milljarða króna niðurskurði

Samgönguáætlun sturtað niður í sjö milljarða króna niðurskurði

78
0
Frá vegagerð í Kjálkafirði á Vestfjörðum. Ljósmynd: Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.

Skera þarf nýframkvæmdir í vegagerð niður um sjö milljarða króna á næsta ári, miðað við samgönguáætlun, til að mæta fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Undir hnífnum lenda framkvæmdir í öllum landshlutum.

<>

Þegar fjárlagafrumvarpið birtist í síðustu viku var kynnt 1.500 milljóna króna viðbót til nýframkvæmda í vegagerð, frá fyrra frumvarpi. Það var hins vegar sleppt að nefna að gert væri ráð fyrir stórfelldum niðurskurði frá gildandi samgönguáætlun, sem Alþingi samþykkti haustið 2016.

Þau sátu öll á þingi þegar samgönguáætlun var samþykkt samhljóða þann 12. október árið 2016. Nú standa þau saman að því að skera hana niður um sjö milljarða króna á næsta ári.Mynd/Stöð 2.

Viðbótin mildar aðeins niðurskurðinn, og er ætluð til nokkurra smærri verkefna, en eftir sem áður þarf að skera vegagerð niður um sjö milljarða króna á næsta ári, í stað 8,5 milljarða niðurskurðar.

Í stjórnkerfinu segja heimildir okkar nú blasa við að nánast engar nýjar stórframkvæmdir hefjist á árinu 2018. Svo stór er niðurskurðartalan að flest stærri verkefni, sem búið var að boða á næsta ári, munu frestast.

Á suðvesturhorninu verður breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi skorin niður og einnig breikkun Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss.

Á Vestfjörðum lenda bæði Dynjandisheiði og Gufudalssveit að öllum líkindum undir hnífnum, og óvíst hvort hægt verði að hefja vegagerð á Veiðileysuhálsi í Árneshreppi.

Á Norðurlandi frestast Bárðardalsvegur og það hægist á Dettifossvegi og fyrir austan seinkar vegarbótum til Borgarfjarðar. Og ný brú yfir Hornafjörð lendir einnig undir hnífnum, að óbreyttu, og sömuleiðis frestast áform um að leggja af nokkrar fleiri einbreiðar brýr.

Hér má sjá þau fyrirheit sem alþingismenn gáfu í samgönguáætlun.

Hér má sjá stærstu verkefnin í samgönguáætlun sem stefnir í að verði skorin niður á næsta ári.Grafík/Hlynur Magnússon, Stöð 2.

Þessi ótrúlegi niðurskurður segir í raun þá sögu að aðeins rúmlega ársgömul samgönguáætlun, samþykkt rétt fyrir kosningar, er á leið í pappírstætarann, og hefur samgönguráðherrann boðað nýja samgönguáætlun eftir áramót.

Heimild: Visir.is