F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Hreinsun gatna- og gönguleiða í Reykjavík 2018-2021 útboð III. EES Útboð nr. 14115.
Verkið felst í hreinsun gatna og gönguleiða í miðbæ Reykjavíkur. Um er að ræða hreinsun og þvott á götum, bílastæðum við götur, gönguleiðum og torgum í miðbæ Reykjavíkur eftir því sem við á og óskað er eftir.
Helstu magntölur eru:
- Heildarlengd gatna er um 20 km
- Heildarlengd gönguleiða er um 38 km.
Verklok: 14. mars 2021.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þann 12. desember 2017.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þann 16. janúar 2018.