Home Fréttir Í fréttum Norðfjarðargöng verða opnuð á laugardaginn

Norðfjarðargöng verða opnuð á laugardaginn

146
0

Laugardaginn 11. nóvember kl. 13:30 verða Norðfjarðargöng formlega opnuð á hefð-bundinn hátt. Jón Gunnarsson samgönguráðherra mun þá klippa á borða með aðstoð Hreins Haraldssonar vegamálastjóra.

<>

Athöfnin fer fram við gangamunnann Eskifjarðar-megin.

Kaffisamsæti verður að athöfn lokinni í Dalahöllinni, í Fannardal, Norðfirði. Fjarðabyggð verður með ýmsar uppákomur samhliða þessu svo sem sjá má á heimasíðu sveitarfélagsins: www.fjardabyggd.is

Norðfjarðargöng leysa af hólmi Oddsskarðsgöng og erfiðan fjallveg að þeim göngum beggja vegna. Oddsskarðsgöng voru byggð á árunum 1972-77 og eru einbreið, 640 m löng og liggja í um 610 metra hæð yfir sjó.

Lengd nýju Norðfjarðarganganna í bergi er 7.566 m, vegskáli er 120 m Eskifjarðarmeginn og 222 m Norðfjarðarmegin eða samtals 342 m.  Heildarlengd ganga með vegskálum er því 7.908 m. Þversnið ganganna er 8,0 m breitt í veghæð.

Í göngunum eru 14 útskot, þar af fjögur snúningsútskot. Inni í göngunum eru 4 steypt tæknirými og 2 við hlið vegskála utan ganga. Neyðarrými fyrir um 150 manns verða við hvert tæknirými inni göngunum.  Vegur í gegnum göngin er 6,5 m breiður milli steyptra upphækkaðra axla.

Gangamunni Eskifjarðarmegin er í 15 m hæð yfir sjó rétt innan við gamla Eskifjarðar­bæinn. Munninn Norðfjarðarmegin er í 126 m hæð yfir sjó í landi. Gólf í göngum fer mest í 170 m hæð yfir sjó.

Nýir vegir að göngunum Eskifjarðarmegin eru um 2 km og Norðfjarðarmegin um 5,3 km, samtals um 7,3 km. Vegurinn er 8 m breiður með 7 m akbraut. Í tengslum við vegagerð að göngum voru byggðar nýjar brýr annars vegar 44 m löng á Norðfjarðará og 58 m löng á Eskifjarðará

Verktaki var Metrostav a.s. og Suðurverk hf, en verkfræðistofan Hnit annaðist eftirlit. VHE ehf. byggði brýrnar. Framkvæmdir á verkstað hófust í september 2013.

Ítarleg lýsing á verkinu og forsögu þess ásamt nokkrum myndum .

Heimild: Vegagerðin