Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu Skaftártunguvegar (208) um Eldvatn í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu ásamt byggingu nýrrar brúar yfir Eldvatn.
Nýr vegkafli er 920 m að lengd frá Hringvegi, um Eldvatn og tengist núverandi Skaftártunguvegi við Eystri-Ása. Ný brú á Eldvatn er 80 m löng stálbogabrú.
Helstu magntölur eru:
Skaftártunguvegur
- Skeringar 28.000 m3
- Fyllingar 20.100 m3
- Styrktarlag 4.750 m3
- Burðarlag 1.700 m3
- Tvöföld klæðing 7.410 m2
- Frágangur fláa 20.050 m2
- Vegrið 252 m
- Grjótvarnarefni 8.000 m3
Brú á Eldvatn
- Mótafletir 385 m2
- Steypustyrktarjárn 49.500 kg
- Steypa 304 m3
- Vegrið á brú 164 m
- Forsteyptar einingar 120 stk.
- Smíði og uppsetning stálvirkja 181 tonn
- Stálvirki, hreinsun 1.220 m2
- Stálvirki, málun 1.220 m2
- Stálvirki, málmhúðun 1.220 m2
Verklok eru 1. nóvember 2018.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 2. október 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31.október 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.