Home Fréttir Í fréttum 19.09.2017 Borgarholtsskóli og Fjölbrautaskólinn við Ármúla – þjónustusamningur um pípulagnir

19.09.2017 Borgarholtsskóli og Fjölbrautaskólinn við Ármúla – þjónustusamningur um pípulagnir

139
0
Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Ríkiseignir óska eftir pípulagningarmönnum til að taka þátt  í  örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald pípulagna í Borgarholtsskóla og Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Verkefnið felst í almennu viðhaldi á pípulögnum, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

<>

Gefa skal verð í 1200 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 90 ferðir vegna efnisöflunar.

Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 19. september 2017 kl. 14:00.