Vegagerðin óskar eftir tilboðum í breikkun og endurbyggingu 5,7 km kafla Vestfjarðavegar í Hvolsdal frá Brekkurétt og út fyrir Skriðuland, ásamt útlögn klæðingar og ræsagerð.
Helstu magntölur eru:
- Fyllingar og fláafleygar bb62.200 m3
- Skeringar 64.100 m3
- Styrktarlag 20.000 m3
- Burðarlag 13.400 m3
- Tvöföld klæðing 46.500 m2
- Frágangur fláa 84.200 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2018.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 4. september 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. september 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.