Vegagerðin óskar eftir tilboðum í undirbyggingu nýs Hringvegar um Hornafjörð, nánar tiltekið milli Hólms og Djúpár. Alls 4,3 km með ræsagerð, ásamt tengingu við núverandi Hringveg. Ennfremur gerð undirbyggingar á 200 m kafla Brunnhólsvegar og 70 m kafla nýs Einholtsvegar. Jafnframt skal skipt um ræsi í núverandi vegi í ánni Míganda.
Helstu magntölur eru:
- Fyllingar, sig og yfirhæð innifalin 150.000 m3
- Ræsalögn 357 m
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. júní 2018.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 4. september 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. september 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag