Vegagerðin, f.h. Vaðlaheiðarganga hf., óskar eftir tilboðum í gerð stjórnkerfis í Vaðlaheiðargöng. Framkvæmdin sem hér um ræðir nær yfir gerð stjórnkerfis í Vaðlaheiðargöng en þau eru um 7,5 km löng, á milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals. Stjórnkerfið hefur það hlutverk að fylgjast með ástandi í göngunum, skrá það, stjórna loftræsingu og láta vita af öllum bilunum og ef það skapast hættusástand. Innifalið í verkinu er smíði stjórn- og neyðarsímaskápa, iðntölvubúnaður, forritun búnaðarins samkvæmt verklýsingu, prófun búnaðarins og gerð handbóka um kerfið.
Helstu magntölur verksins eru:
- a) Stjórnskápar 6 stk.
- b) Símaskápar 15 stk.
- c) Símaklefar innrétting 16 stk.
- d) Iðntölvubúnaður 33 stýrivélar og fjar I/O
- e) Netbúnaður 39 stk.
- f) Forritum stjórnkerfis samkvæmt kröfum
- g) Stýriteikningar fyrir stjórnskápa
- h) Prófun alls búnaðar
- i) Gerð handbóka um kerfið
Verki skal lokið að fullu 31. júlí 2018.
Útboðsgögn (á tölvulykli) verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá mánudeginum 28. ágúst 2017. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. september 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.