Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir eftir tilboðum í endurgerð á ytra byrði Aðalgötu 21A Sauðárkróki. Verkið felst m.a. í steypuviðgerðum, einangrun og klæðningu útveggja, endurgerð glugga og hurða auk einangrunar og pappalagnar á þökum.
Upplýsingar um helstu verkþætti má finna á meðfylgjandi mynd.
Verklok eru 1. júní 2018.
Útboðsgögn verða til afhendingar á Verkfræðistofunni Stoð ehf. á Aðalgötu 21 á Sauðárkróki frá og með mánudegi 31. júlí 2017. Gögn verða afhent á geisladiski, endurgjaldslaust. Einnig er hægt að óska eftir útboðsgögnum í tölvupósti á netfangið atli@stodehf.is.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 29. ágúst nk. kl. 13:00 á Verkfræðistofunni Stoð ehf. á Sauðárkróki.