Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við Ásgarðslaug í Garðabæ ganga vel

Framkvæmdir við Ásgarðslaug í Garðabæ ganga vel

383
0
Ásgarðslaug

Framkvæmdir við sundlaugina í Ásgarði ganga vel. Unnið er að lagnavinnu og uppsetningu á búnaði í lagnakjallara sem hýsir sundlaugakerfið og annan búnað sem viðkemur rekstri sundlaugarinnar.

<>

Undirbúningur vegna flísalagnar á útisvæði er í fullum gangi og hefst flísalögn á og á sundlauginni sjálfri og pottum fljótlega.

Búningsklefar eru langt á veg komnir, lagnavinnu þar að mestu lokið og verið er að leggja lokahönd á flísalagnir í klefunum.

Á efri hæð er verið að gera líkamsræktaraðstöðu við hlið danssalarins og er sú vinna langt komin, aðeins er eftir að setja dúk á gólfið og gler á milli dans- og líkamsræktaraðstöðu.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af framkvæmdunum.

Heimild: Garðabær